Alþjóðlegi dansdagurinn 29. apríl 2025
- Lilja Björk Haraldsdóttir
- Apr 28
- 1 min read
Félag íslenskra listdansara og Dansverkstæðið sameinast um að fagna Alþjóðlega dansdeginum þann 29. apríl 2025 með dagskrá á Dansverkstæðinu allan daginn!
Dagskrá:
9:00 - 10:00
Morguntími - Contemporary floorwork
Pontus Linder og Erwin Semler
10:00 - 12:00
Morgunmatur í boði FÍLD -
FÍLD býður upp á morgunmat fyrir dansara!
11:00
Íslenskt ávarp alþjóðlega dansdagsins birt og lesið upp ásamt alþjóðlegu orðsendingunni.
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, nýráðinn listdansstjóri skrifar íslenska ávarp ársins og Mikhail Baryshnikov skrifaði alþjóðlegu orðsendinguna. Hægt er að lesa ávörpin hér: Ávarp 2025
12:00 - 16:00
Opnar vinnustofur
Vilt þú kynnast vinnuaðferðum danshöfunda? Dansverkstæðið opnar dyrnar og hægt er að skyggnast inn í vinnudag danshöfunda allan daginn.
Danshöfundar sem eru starfandi þennan dag eru:
Selma Reynisdóttir og Olivia Pyszko - vinnustofa í gerð dansverks fyrir unga áhorfendur 12:00 - 14:00
Pontus Linder og Erwin Semler frá Svíþjóð/Finnlandi 14:00 - 16:00
Charles Brecard frá Nýju - Kaledóníu 14:00 - 16:00
17:00 - 18:30
Vinnustofa - Fluidify
með Charles Brecard
Vinnustofan er frí en mikilvægt að skrá sig með því að senda póst á info@dansverkstaedid.com
Allan daginn:
Hægt verður að kíkja í nýútkomna bók Ingibjargar Björnsdóttur um Listdans á Íslandi ásamt safni hennar af blaðaúrklippum, gagnrýni og umsögn um dans á Íslandi frá árunum 1966 - 1998.
Heitt verður á könnunni á Dansverkstæðinu og öll velkomin að kíkja við!
Við hlökkum til að fagna deginum með ykkur!
Comments